Sumarhefti Þjóðmála er komið út

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Sumarhefti Þjóðmála er komið út og verður dreift til áskrifenda.

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, fjallar um hugmyndafræðilega endurnýjun Sjálfstæðisflokksins, meirihlutasamstarfið á Alþingi, einkarekstur í heilbrigðiskerfinu, skattaumhverfið hér á landi, stöðu fjölmiðla og fleira í ítarlegu viðtali.

Ásta S. Fjeldsted, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallar um eftirlitsstofnanir og sameininguna sem aldrei varð.

Heiða K. Helgadóttir, framkvæmdastjóri Niceland, fjallar um mikilvægi þess að fjárfesta í ímynd sjávarútvegsgeirans erlendis.

Eva Hauksdóttir lögfræðingur fjallar um vafasöm áform yfirvalda um kortlagningu upplýsingaóreiðu.

Björn Bjarnason fjallar um nýafstaðnar ­forsetakosningar, viðbrögð stjórnvalda við Covid-19 og efnahagslífið í skugga veirunnar í reglulegum pistli sínum Af vettvangi stjórnmálanna.

Þorkell Sigurlaugsson viðskiptafræðingur fjallar um tækifærin í nýsköpun og sjálfbærni og árangur íslenskra fyrirtækja á sviðinu.

Björn Jón Bragason, doktorsnemi í lögfræði og sagnfræði, fjallar í ítarlegri úttekt um Ottó A. Michelsen, einn helsta brautryðjanda upplýsingatækni hér á landi.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, fjallar um sívaxandi vinsældir netskákar.

Kjartan Fjeldsted fjallar um mögulegan sigur kommúnismans eftir fall Berlínarmúrsins.

Snorri G. Bergsson sagnfræðingur fjallar um landvistarumsóknir Gyðinga á Íslandi 1935–1940 og hvernig þær voru afgreiddar.

Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur fjallar um merkilegar hljóðritanir klassískra verka.

Jóhann J. Ólafsson lögfræðingur fjallar um fullveldi og mannréttindi.

50 ár eru liðin frá andláti dr. Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Af því tilefni er birt í heild sinni á prenti ræða hans sem flutt var á Þingvöllum í júní 1943. Ræðan var flutt á örlagaríku lokaskeiði íslenskrar sjálfstæðisbaráttu.

 

Þjóðmál kemur út ársfjórðungslega. Áskriftarverð er kr. 5.855 á ári. Hægt er að gerast áskrifandi með því að senda tölvupóst á askrift[a]thjodmal.is eða skilaboð á facebook síðu Þjóðmála. Þá fæst ritið einnig í lausasölu í verslunum Pennans/Eymundsson.